Fréttir og tilkynningar
Hjólaskóli Kamps á Dr. Bæk á ferðinni | 07.05.2012
Það voru hressir krakkar og foreldrar sem hjóluðu niður í Nauthólsvík föstudaginn 4. maí í blíðskaparveðri, á lokadegi Hjólaskólans þá vikuna. Þetta voru börn úr Háteigsskóla auk kennara og fylgdarliðs. Búið var að yfirfara hjólin og hjálma, búið að reyna við hjólaþrautir og nú var það hjólreiðatúr.
Nú eru þrjú námskeið eftir, eitt í þessari viku fyrir börn í Háteigsskóla, 4.5. og 6. bekk, dagana 9. 10. og 11 maí.
Svo eru tvö námskeið eftir í Austurbæjarskóla, dagana 15, 16 og 18 maí og svo 22, 23 og 25. maí. Ennþá örfá sæti laus á síðasta námskeiðið í Austurbæjarskóla. Gleðilegt sumar! Kampur
Hjólaskóli Kamps og Dr. Bæk hefst á morgun, þriðjudag | 16.04.2012
Gaman að segja frá því að það er að verða uppselt á öll hjólanámskeiðin í vor, örfá sæti laus á síðasta námskeiðið frá Austurbæjarskóla. Hjólaskólinn byrjar á morgun, þriðjudag við andyri Hlíðaskóla. Allir verða að vera á eigin hjólum. Börnin fá smá nesti og þau fá nýja hjálma frá TM og öryggisvesti. Fyrsta skiptið er verið að yfirfara hjólin og gera þau tilbúin fyrir sumarið. Í öðrum tímanum verða hjólaleikir og í síðasta skiptið er farin hjólreiðaferð s.s. út í Val og í Nauthólsvík. Foreldrar eru velkomnir með í lokaskiptið. Allir fá viðurkenningarskjöl í lokin. Kennarar koma frá Hjólafærni (sjá hjolafaerni.is) og eru þaulreyndir og æfðir hjólreiðakennarar.
Hjólaskóli Kamps og Dr. Bæk | 29.03.2012
Það er komið að því!
Við ætlum að bjóða upp á Hjólaskóla í apríl og maí í hverfinu.
Það verða tvö námskeið við hvern skóla og er skólinn ætlaður nemendum í 4., 5. og 6. bekk, í Háteigs-, Hlíða- og Austurbæjarskóla.