Frístundamiðstöðin Kampur starfrækir þrjár félagsmiðstöðvar í Miðborg/ Hlíðum. Markhópur félagsmiðstöðvanna eru unglingar á aldrinum 10-16 ára.
Áherslurnar í félagsmiðstöðvarstarfinu eru á samvinnu, gagnkvæma virðingu, reynslunám og að veita unglingum vettvang og tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri og í framkvæmd, gefa þeim tækifæri til að auka félagslegan þroska sinn, vinna að áhugamálum og fást við skemmtileg verkefni. Síðast en ekki síst er verið að taka þátt í starfi þar sem skýr afstaða er tekin gegn neyslu vímuefna og annarri neikvæðri hegðun. Barna- og unglingalýðræði er hugmyndafræðin sem starfið byggir á og tryggir áhrif barna og unglinga á starfið. Kosningar í sameiginleg unglingaráð félagsmiðstöðvanna og skólanna eru í anda þessarar hugmyndafræði en mikilvægasta hlutverk ráðanna er að virkja sem flesta til þátttöku í starfinu ásamt því að standa fyrir og skipuleggja dagskrána.
Deildarstjóri unglingastarfs Kamps er Dagbjört Ásbjörnsdóttir.
Félagsmiðstöðvar Kamps eru eftirfarandi:
Félagsmiðstöðin 100og1
Austurbæjarskóla, 101 Reykjavík
Þórunn Vignisdóttir, s: 695-5075
thorunn.vignisdottir@reykjavik.is
Félagsmiðstöðin 105
Háteigsskóla, 105 Reykjavík
Andrea Marel, s: 695-5216
andrea.marel@reykjavik.is
Félagsmiðstöðin .is
Hlíðaskóla/Ýmishúsi, 105 Reykjavík
Elísa Snæbjörnsdóttir, s: 695-5215
elisa.snaebjornsdottir@reykjavik.is