Mannlegir styrkleikar og að flytja í nýtt land
21.02.2012
Að flytja í nýtt land og mannlegir styrkleikar:
Það er gjarnan stór ákvörðun að flytja í nýtt land. Stundum er slík ákvörðun tekin af fúsum og frjálsum vilja en aðrir eru neyddir í þá vegferð. Hvort sem dvölin er til lengri eða skemmri tíma er það átak að læra á nýtt samfélag, fá að sjá ný viðmið og kynnast nýjum siðum og tungumáli. Auðvitað er það líka tækifæri og einstakar minningar. Ef við skoðum hvaða jákvæðu mannlega eiginleika slíkt ferðalag reynir á og hvaða mannlegir styrkleikar þroskast þá meira en ella, eru þessir helst: samskiptahæfni, víðsýni, jákvæðni, umburðarlyndi, þroski, æðruleysi, velgengni og seigla (Hanna Ragnarsdóttir 2011). Ekki afleitir eiginleikar það. Flutningar fólks milli landa er miklir á nú um undir, bæði til landsins og frá því.
Hanna Ragnarsdóttir (2011). Líf og störf ungra innflytjenda. Uppeldi og menntun 20. Árgangur. 2. hefti.