Fréttir og tilkynningar

Öskudagur næstkomandi miðvikudag

20.02.2012

Nú eru aðeins tveir dagar í Öskudag og spennan orðinn gríðarleg. Þetta er jafnframt langur dagur hjá okkur í Hlíðaskjóli eins og flestum ætti að vera orðið kunnugt. Það verður ball í hátíðarsalnum í Hlíðaskóla frá kl 14:00 til kl 16:00. Þar sem að verður mikið stuð og krökkunum verður gefið eitthvað gotterí. Næstu tvo daga eftir Öskudaginn verður lokað hjá okkur í Hlíðaskjóli en á fimmtudeginum verður boðið upp á leikstræti fyrir börn í 1.-10. bekkjar í Hlíðaskóla, Háteigsskóla og Austurbæjarskóla. Hægt er að sjá nánari útdeilingu á dagskráni hér í fréttinni fyrir neðan, einnig hefur verið sendur út tölvupóstur á alla foreldra og forráðamenn um viðburðinn. Að lokum viljum við minna á að það er AFTUR langur dagur hjá okkur í Hlíðaskjóli miðvikudaginn 29. febrúar og lýkur skráningu fyrir hann á morgun, þriðjudag.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit