Fréttir og tilkynningar

Hei, hér er skemmtilegur dagur á Borgarbókasafninu!

17.02.2012

Alþjóðlegur móðurmálsdagur - okkar mál!
 Á Alþjóðlegum móðurmálsdegi, þriðjudaginn 21. febrúar, verður dagskrá fyrir börn og fjölskyldur þeirra í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15 og hefst hún kl. 17.
Dagskrá:
Kl. 17.00
Skemmtiatriði á vegum félagsins Móðurmál
Kl. 17.30-18.30
Tungumálatorg
Á tungumálatorginu verður hægt að nálgast hin mismunandi móðurmál á margvíslegan hátt, hlusta á sögur, búa til ljóð, fara í leiki og annað.
- „Lifandi tungumál“, viltu fræðast um japönsku, ítölsku, tékknesku eða önnur tungumál? Gríptu tækifærið og fáðu „lifandi tungumál“ að láni!
- Sögustundir á ýmsum tungumálum.
- Dimmalimm-leikur á mörgum tungumálum.
- „Öll fallegu orðin“, skrifaðu falleg orð á þínu móðurmáli og leyfðu þeim að prýða vegginn.
- Klippiljóð, settu saman ljóð eða stuttan texta á þínu móðurmáli eða blandaðu tungumálum saman á skemmtilegan hátt.
- Tungumálabásar, fulltrúar ólíkra tungumála kynna sitt tungumál og menningarheim.
- Kynningarbásar, félagið Móðurmál, tungumalatorg.is, Skóla – og frístundasvið, Bókmenntaborgin og Borgarbókasafn kynna ýmsa starfsemi sem tengist málefninu.
- Á staðnum verða barnabækur á ýmsum tungumálum, fróðleiksmolar um tungumál og skemmtilegt fólk frá öllum heimshornum.
Frú Vigdís Finnbogadóttir verður heiðursgestur samkomunnar.

Markmið dagskrárinnar er að vekja athygli á tungumálum og menningarheimunum sem fylgja þeim og að skapa gleði og stolt hjá börnum sem hafa annað tungumál en íslensku að móðurmáli. Málið okkar er okkar mál.

Allir velkomnir.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit