Fréttir og tilkynningar

Leikstræti 23.febrúar!

16.02.2012

Frístundamiðstöðin Kampur stendur fyrir fjölskylduviðburðinum Leikstræti –lokað fyrir umferð opnað fyrir leik- Barónstíg við Sundhöllina fimmtudaginn 23.febrúar 2012 frá kl 14:00-17:00. Dótakassinn verður opinn, flugdrekar, götukrít, tómbólur til styrktar Unicef. Sundhöllin býður gestum Leikstrætis frítt í sund frá kl 14:00-16:00.

Kampsráð unglinga 8.-10.bekkja í Austurbæjar-, Háteigs- og Hlíðaskóla kemur að skipulagi Leikstrætis og taka þátt umsjón viðburðarins. Barónstígur verður lokaður milli Bergþórugötu og Egilsgötu.

Þetta verður einstök upplifun fyrir börn, unglinga og foreldra í hverfinu. Góða skemmtun!




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit