Fréttir og tilkynningar

Gogoyoko, Valentínusarball og Hilmarinn!

16.02.2012

Nú er nóg um að vera í unglingastarfinu hjá Kampi. Þann 8. febrúar hélt Gogoyoko í samstarfi við Samfés glæsilega tónleika fyrir unglingana í Kampi. Tónleikarnir fóru fram í Háteigsskóla og var rosafjör. Miðvikudaginn 15. febrúar fór fram Valentínusarball þar sem skólarnir þrír mættust saman í kærleika, vinsemd og gleði og var það mjög vel heppnað.

Nú er svo framundan stuttmyndakeppnin Hilmarinn 2012. Hún verður haldin í Hátíðarsal Háteigsskóla föstudaginn 17.febrúar. Þar keppa stuttmyndir unglinganna í hverfinu um glæsilegu Hilmarsstyttuna. Hátíðin er nefnd eftir Hilmari Oddssyni leikstjóra en hann er fyrrum nemandi Háteigsskóla. Myndir af öllum stærðum og gerðum eru skráðar til leiks að þessu sinni og verður þetta frábær keppni. Dómararnir eru ekki af verri endanum og er um fagfólk úr sjónvarps- og kvikmyndabransanum að ræða. Allir eru velkomnir á Hilmarinn enda er þetta eins og hressileg bíóferð, popp og djús í boði og grínmyndir, hryllingsmyndir, skólaverkefni og ýmis vídjóverk á risatjaldi. Frítt inn og hefst fjörið klukkan 19:30.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit