Næsta vika!
15.02.2012
Kæra fólk. Eins og flestir vita þá er næsta vika óhefðbundin vegna bollu,- sprengi- og öskudags, en dagskráin mun haldast nánast óbreytt í Draumalandi. Á mánudaginn verður boðið uppá bollur, auk þess sem fyrsti bekkurinn ætlar að fara í heimsókn á Borgarbókasafnið í Tryggvagötu. Á miðvikudaginn er dagskrá fyrir börnin milli 9 og 12 á vegum skólans. Þau koma svo til okkar á sínum venjulega tíma og verður líka einhver dagskrá, en hún verður auglýst nánar þegar nær dregur. Á fimmtudaginn verður svokallað Leikstræti Kamps, en þá verður Barónsstígnum lokað á milli Bergþórugötu og Heilsuverndarstöðvarinnar. Dagskrá verður í boði fyrir börnin á milli 14 og 17 - til dæmis verður dótakassinn á staðnum og svo verður frítt í sund á milli 14 og 16. Auk þess verður boðið uppá grillaðar pulsur. Allir eru velkomnir og munum við fara með þau börn sem vilja frá Draumalandi.