Fréttir og tilkynningar

Austurbæjarskóli styrkir krabbameinsfélagið

24.01.2012

Tveir vaskir fulltrúar nemendaráðs Austurbæjarskóla fóru færandi hendi uppí Krabbameinsfélag með afrakstur góðgerðarviku sem haldin var í skólanum fyrir áramót.  Nemendur skólans höfðu þá ákveðið að láta ágóða vikunnar renna til Krabbameinsfélagsins að því tilefni að góðgerðarvikan var haldin á sama tíma og söfnunin Bleika slaufan var á sama tíma.  Hér á eftir má sjá umfjöllun um góðgerðarvikuna sem samin er af nemendaráði skólans.

 

Upp kom sú hugmynd í Kampi, sem er sameiginleg félagsmiðstöð Austurbæjar-, Háteigs- og Hlíðaskóla, að halda góðgerðarviku og að lokum þróaðist hugmyndin þannig að viku keppni milli skóla hófst. Við í Austurbæjarskóla byrjuðum vikuna á að setja upp töflu þar sem nemendur skrifuðu stig fyrir góðverk sín, t.d. hrós, hjálpa hvert öðru, tína upp rusl, og fleira. Einnig fengu nemendur stig ef þeir gáfu pening til góðgerðarmála og af því að þetta var 10.-14. október fannst okkur upplagt að láta gróðann af vikunni renna til Bleiku slaufunnar. Á miðvikudaginn mættum við öll í bleiku í skólann til að sína stuðning, sungum afmælissönginn fyrir Guðmund skólastjórann okkar inná myndband og um kvöldið hittumst við í félagsmiðstöðinni okkar 100og1 og bjuggum til bleikan brjóstsykur. Daginn eftir seldum við brjóstsykurinn bæði á kennarastofunni og í frímínútunum, skrifuðum fallegar orðsendingar til hvors annars á postit miða og gáfum frí knús. Á föstudeginum fóru krakkarnir úr nemendaráðinu með afmælisgjöfina til Guðmunds skólastjóra, gjöfin innihélt tvö brjóstsykurspoka, myndband með afmælissöngnum frá nemendunum og risastórt kort sem að allir nemendur úr unglinadeildinni höfðu skrifað undir daginn áður. Á föstudeginum fengu einnig nemendur úr unglingadeild Austurbæjarskóla frí í seinasta tímanum til að fara út og mynda eitt risastórt hjarta í sameningu. Austurbæjarskóli vann góðgerðarvikuna með miklum yfirburðum og þegar allt var tekið saman var níundi bekkurinn með flest stig. Góðgerðar-, kærleiks- og gleðivikan okkar heppnaðist mjög vel og okkur langaði til að láta gott af okkur leiða og styrkja gott málefni, þess vegna viljum við gefa peninginn við söfnuðum, 11.132 kr. til Krabbameinsfélagsins.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit