Fréttir og tilkynningar
Vikulok | Draumaland 18.03.2011
Skákmót Kamps var haldið síðasta miðvikudag og var vægast sagt mjög góð þátttaka. Hlíðaskjól komst því miður ekki til okkar í þetta skiptið og við vonum bara að þau komist næst.
Myndir! | 17.03.2011
Við erum búinn að setja inn fullt af nýjum skemtilegum ljósmyndum. Sjá myndir til vinstri undir Myndir/pictures.
We now have lots of fun pictures. Click Myndir/Pictures on the left to see them!
Nýjar myndir!!! | Hlíðarskjól 17.03.2011
Loksins loksins hefur okkur tekist að setja hluta af öllum þeim frábæru myndum sem við höfum tekið uppá síðkastið inná heimasíðuna. Það var einstaklega ljúfur og skemmtilegur tölvusérfræðingur sem gerði okkur það kleift og þökkum við honum innilega fyrir. Það eru fleiri myndir á leiðinni svo það þ...
Endurvekjum gamlar hefðir | Hlíðarskjól 17.03.2011
Eftir ábendingu frá foreldri höfum við ákveðið að endurvekja þá hefð að hafa Val-daga hérna í Hlíðaskjóli. Þessa daga munu börnin fá að velja hvað verði í boði fyrir þau úr valkostum sem við leyfum þeim að kjósa um deginum áður. Þetta fyrirkomulag var í byrjun vetrar en datt því miður uppfyrir þeg...
Skákmót Kamps | Draumaland 16.03.2011
Kæru foreldrar og forráðamenn. Í dag ætla börn úr Frístund og Hlíðaskjóli að koma til okkar og taka þátt í skákmóti Kamps. Í ljósi misjafnra hæfileika í skák verður aðal áherslan lögð á skemmtun frekar en keppni og vonum við að allir verði ánægðir að móti loknu.
Framhaldnámskeið í Sirkús og trúðafræðum! | 10-12 14.03.2011
Sigga og Íris Stefánía ætla að bjóða þeim sem eru áhugasömust á námskeiðinu á framhaldsnámskeið. Sefnan er sett á að hópurinn sýni einhversstaðar. Verð kr. 8000. Námskeiðið verður áfram í hátíðarsal Háteigsskóla. Skráning stendur nú yfir hjá hrefna.gudmundsdottir@reykjavik.is
Kór á morgun | Draumaland 14.03.2011
Kæru foreldrar og forráðamenn. Ný vika byrjar á frekar leiðinlegu veðri þannig að það verður sennilega mikið um inniveru og jafnvel vídeo. Við viljum minna á kórinn sem hefur göngu sína á morgun með Pétri tónlistarkennara og verður sem sagt á þriðjudögum milli 14.30 og 15.30 í tónlistarstofunni í Au...
Öskudagsballið | Draumaland 11.03.2011
Síðasta miðvikudag, sem var öskudagur, fórum við í Draumalandi á búningaball sem unglingarnir í félagsmiðstöðinni höfðu boðið okkur á. Það er skemmst frá því að segja að það var rosalegt stuð og allir skemmtu sér konunglega. Allir fengu ís og var líka boðið uppá djús.