Frístundamiðstöðin Kampur
Pósthússtræti 3-5
Sími: 411 5560
Netfang:kampur@reykjavik.is
Frístundamiðstöðin Kampur tók formlega til starfa 1.maí 2007. Frístundamiðstöðin býður upp á fjölbreytta og heildsstæða frístundaiðju fyrir íbúa Miðborgar og Hlíða og vinnur að því að efla og bæta aðstöðu til frístundaiðkunar í borgarhlutanum. Megináherslan er lögð á barna- og unglingastarf.
Frístundamiðstöðin er þekkingarmiðstöð ÍTR í frítímaþjónustu fyrir innflytjendur.
Um margskonar samstarf er að ræða í frístundamiðstöðinni við ólíka hagsmunaaðila m.a. á sviði forvarna og hverfahátíða. Þar má m.a. nefna samstarf við Íþróttafélagið Val og Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða. Í Kampi vinna um 90 starfsmenn með fjölbreyttan bakgrunn, bæði hvað varðar nám, reynslu og þjóðerni.
Skrifstofa Kamps er opin virka daga kl. 8.30 - 16.30.
Sími á skrifstofu: 411-5560