Fallegar_myndir Samfés
 
 

Punktur IS

 

 Loksins!!! Við í .is erum komin með heimasíðu. Eftir hafa gengið til heljar og til baka fékkst það í gegn að fá heimasíðu fyrir okkur... [ MEIRA ]

Baukur

Eru þið ekki að grínast hvað var gaman í skíðaferðinni. Þið sem komuð ekki með misstuð svo af miklu.... [ MEIRA ]

Fullt fullt....

Jæja núna höfum við aldeilis bætt við af..... [ MEIRA ]

Samfélshátiðin !!!

Núna ferð það að skella á!!! Samfésballið með öllu sínu veldi. Samféshátiðin fer fram þann 7. -8. mars og þvílík dagskrá....

[ MEIRA ]

Miðasalan á Samféshátiðina

Núna í kvöld (mánudagur) þá munum við selja miðanna á Samféshátiðina sem er ballið á föstudagskvöldið og svo á söngkeppnina á laugardeginum... [ MEIRA ]

Sigga Sæta út en Hrönn Gella inn

Núna hefur Sigga okkar yfirgefið okkur, hún hefur tekið við félagsmiðstöðinni í Vogaskóla. Við munum sakna hennar sárt og þó sérstaklega.....

[ MEIRA ]

Samféshátiðin búin

Síðustu helgi var Samfés hátíðin mikla. Fjölmennur, prúðbúinn og fallegur hópur fór frá .is ásamt krökkum úr félagsmiðstöðvunum 101 og 105 í HUGE strætó........... [ MEIRA ]

Árshátið Hlíðó

Í gær var árshátíð Hlíðó og það var þvílíkt gaman. Tekið var á móti okkur með flottum og góðum fordrykk....

[ MEIRA ]

Páskar

Hæhæ öll saman. Við í félagsmiðstöðinni .is viljum bara óska ykkur gleðilegra páska og .... [ MEIRA ]

Kvít - stuttmyndahátið

25. apríl mun félagsmiðstöðin 105 (Háteigsskóli)halda stuttmyndahátíð í sal skólans og mun hátíðin standa frá 19-22 (eða fer eftir fjölda mynda og aðsókn!).

Mánudaginn 7. og 9. apríl er tekið á móti umsóknum um að vera með. 
Um er að ræða mánudag frá 16-22 og miðvikudagskvöld.
Auk þess að fá að vera með, er í boði þjálfun og aðstoð.
Miðvikudaginn 9. apríl fáum við sérfræðing í handritagerð fyrir kvikmyndir í heimsókn kl. 20.
Mánudaginn 14. apríl kl. 16-19 verður síðan námskeið í klippingu og ,,creditlista"................
[ MEIRA ]

Hvað er um að vera þessa vikuna...?

Í kvöld verður haldið STELPUKVÖLD í ....

[ MEIRA ]

Myndir

hæhæ
 
Vitiði hvað ?!?!? Það eru bara komnar myndir inná Kampssíðuna.....
[ MEIRA ]

10. bekkingar

Við í .is viljum bara óska öllum 10.bekkingum góðs gengis í samræmdu prófunum sama hversu mörg þau verða.
 
Við sjáumst svo í félagsmiðstöðinni þegar próflærdómurinn er búinn:)

Comment

Vissuði að það er hægt að commenta á myndirnar sem við setjum hérna inn... ójá!! Endilega skrifið eitthvað skemmtilegt við myndirnar. Ekkert bull eða leiðindi verður leyft enda verður textinn ekki birtur fyrr en við samþykkjum hann.

Dagskrá vikunnar

Dagskrá vikunnar 5.-9.maí:
 
Mánudagur 5.maí:
Teikniklúbbur og við fáum gest!!!
Svo  förum við í heimsókn í Vogaskóla og kíkjum á Siggu pæju:)
 
[ MEIRA ]

19.-23.maí...

Halló halló..
 
Í kvöld verður farið í Klifurhúsið. jibbí...Sendum upplýsingar á þá sem skráðu sig seinna í dag.
 
Á miðvikudaginn, 21.maí, verður lokaball Hlíðaskóla 2008!!!
Ballið byrjar kl.19 og því lýkur kl.22. ...
 
 
[ MEIRA ]

Tékkið á nýju myndunum...

Það voru að koma inn nýjar myndir frá síðustu vikum...tékkið á þeim:)
 

Valkyrjur

Hátíðin Valkyrjan verður haldin dagana 23. – 25. maí í Hinu Húsinu og er opin öllum ungum konum á aldrinum 15 - 25 ára.

 
Markmiðið með Valkyrjunni er að lýsa upp og fagna fjölbreytileika stelpna, vinna gegn þeirra eigin staðalímyndum og benda á að stelpur geta verið mjúkar, linar, harðar, töffarar, dömur, artí, skvísur, pæjur, hippsterar, femínistar,  blanda af öllu eða hvað það sem þær velja að vera.

Lokakvöldið

Það var svaka stuð í Nauthólsvíkinni á föstudaginn og við gerðum margt skemmtilegt. Við fórum meðal annars á Kajak og grilluðum pylsur eða pulsur eða bara pullur.
 
Einnig var leikið sér í sandinum og hoppað í sjóinn
Allt þetta værður hægt að sjá á myndum á myndasíðunni þegar búið verður henda inn myndunum.
 
 
 
 
 

Allt tekur þetta enda........

Jæja þá er þetta búið hjá okkur í vetur. Við í félagsmiðstöðinni .is viljum þakka ykkur sem komu í heimsókn til okkar í vetur og skemmtu sér með okkur. Við erum samt aðeins komin í sumarfrí og því sjáumst við hress og kát næsta vetur á sama stað í dúndur stuði. Það verður bara algjör bomba að þegar við hittumst aftur, ég segi það og skrifa B-O-B-A.
 
Starfsfólk .is

Strákarnir okkar!!!!

HANDBOLTAÆÐI!!!
 
Við ætlum að vera með og taka á móti strákunum okkar sem með blóði, svita og tárum (og alveg kostulegri dramatík) færðu okkur silfrið á ólympíuleikunum í Kína!
MIÐVIKUDAGINN 27. ÁGÚST
Frístundamiðstöðin .IS opnar 17.00 og við leggjum af stað kl. 17.30. Síðan löbbum við niður laugaveginn og endum á Arnarhól þar sem allir fá að skoða og vinka handboltahetjunum og þeir að vinka okkur. Við leggjum af stað í Hlíðaskóla aftur sirka kl. 19.00
 
ATH! Það verður lokað í .IS á meðan við erum niðrí bæ.
 
Vonum til að sjá sem flesta!! :)
Svala, Kristinn og Anna handboltafríks.

Myndir frá hverfahátíð

 
Það var hverfahátíð síðastliðinn laugardag á Miklatúni og við létum okkur að sjálfsögðu ekki vanta! Hljómsveitin okkar úr Hlíðó, hin goðsagnakennda "INDIUM" hristi vel upp í fólkinu! Stuðstuðstuuuuuuuð. IndiumFleiri myndir má skoða hér

BÍÓ Á MIÐVIKUDAGINN 8. OKTÓBER

Við ætlum í bíó á miðvikudaginn! Ætlum að sjá "Journey to the Center of the Earth" með íslensku þokkadísinni Anítu Briem... Myndin er að hluta til tekin upp hér á Fróni og við ætlum ekki að missa af henni í bíó!
 
Here´s the deal!
Bíómiði + miðstærð kók + miðstærð popp á 1000 KELL!!!!!
 
MÆTING FRAM Á GANGI Á SLAGINU 19.15. VIÐ LEGGJUM AF STAÐ KL. 19.30
 
MUNA AÐ TAKA MEÐ 1000 KALL!

Myndir frá Samfés!

 
Landsmót Samfés, sem var haldið í Garði um helgina, heppnaðist ótrúlega vel. Fjölmargar flottar smiðjur voru í boði og Hlíðó-krúið fór í Björgunarsmiðju, Pílusmiðju, Glersmiðju og leiklistarsmiðju! 
 
Fyrstu myndirnar frá helginni má skoða hér og hér
(Fleiri myndir eru á leiðinni!!!!)
 
Einnig má lesa fréttastiklur á Samfes.is

Að búa til mynd!

Hvað er sniðugt að gera á föstudagskvöldi? jú einmitt að hitta aðra úr hverfinum í kring og hafa gaman, fá gesti til að svara spurningum okkar um hvernig við búum til kvikmynd eða stuttmynd, fá sér heitt kakó og bara spjalla!
Við ætlum að hittast öll í .is (Hlíðaskóla) og munum skunda saman úr 101 og 105 kl. 19:30 og sameinast í .is kl. 20.  
Léttar veitingar í boði.
 
Gestir kvöldins eru EKKI AF VERRI endanum - nánar um það síðar.
Ekki missa af þessu einstaka kvöldi.
Þetta verður ógleymanlegt kvöld með öllu.
Kampur - .is/101/105
Allir að mæta!

HILMARINN!!!

 
 
Hilmarinn er stuttmyndahátíð Kamps, haldin í Háteigsskóla í annað sinn nú í haust. 
Hilmarinn heitir í höfuðið á Hilmari Oddssyni, kvikmyndagerðarmanni sem var sjálfur í Háteigsskóla og hefur nú gert garðinn frægan. Hann situr í dómnefnd keppninnar og er verndari hátíðarinnar.
 
Verðlaunin eru veglegur farandbikar, styttan Járnmaðurinn e. Ásmund Sveinsson.
Dómnefnd velur sjálf fyrir hvað þeir vilja verðlauna í hvert sinn.
 
Keppnin er haldin í annað sinn, lokakvöldið er 7. nóvember 2008.  Þetta verður eitt glæsilegasta kvöld ársins.
 
Þeir sem vilja vera með í þessu ferli, látið Svölu eða Kristinn úr félagsmiðstöðinni .IS fá nafnið ykkar og síma og þar með fáið þið allar nánari upplýsingar um uppákomuna, aðdragandann, námskeið ofrv. Þið fáið þá nafnbótina ,,hilmarar" sem er ekki slæmt.
 
Hilmarsráðið - sem stendur að keppninni í ár eru; Daníel, Ingólfur (10. bekk) og Sindri (.8. bekk) úr Hlíðaskóla
 
Allar nánari upplýsingar veitir; svala.georgsdottir@reykjavik.is

mYnDiR fRá HrEkKjAvÖkU .IS

 
Tékk it!!
 
 

BÍÓ Á MIÐVIKUDAGINN 19. nóvember!

Við ætlum í bíó næsta miðvikudag, 19. nóvember! Myndin heitir "SEXDRIVE" og hægt er að lesa meir um myndina hér: http://midi.is/bio/10/1465/. Þetta er gamanmynd í anda "American Pie" og mjög líklega frekar fyndin. Það kostar aðeins 1.000 kall að vera með og fyrir það fær maður MIÐA + miðstærð af poppi og kók! Það gerist nú ekki mikið ódýrara! Muna bara að mæta tímanlega í .IS kl. 19.30 og svo förum við saman í Kringlubíó. Muna að taka þúsundkall með. 
 

Myndir frá Landsmóti Samfés í Garði!

LOKSINS LOKSINS LOKSINS!!!!!!
 
Nú geta allir séð hvað var gaman hjá fulltrúum úr nemendafélagi Hlíðaskóli á Samfés í Garði núna í haust. Tökum smá nostalgíuflipp og rifjum upp hvað það var gaman í rútunni, smiðjunum, sundlaugapartíinu, draugasögukvöldinu góða og ballinu og fleira fleira með því að smella HÉR!

Lasertag 8. desember! ATH SKRÁNING FYRIRFRAM!!!

 
Hæ hó! Við ætlum að fara í Lasertag á mánudaginn, 8. desember KL. 19.00 og viljum sjá sem flesta með okkur! Um að gera að hrista aðeins upp í þessu og fara í smá hasar áður en við förum að hafa það jólalegt og kósý!
 
Það kostar 1500 kr. að koma með og þá er innifalið Lasertag, Pizza og kók + ferð fram og tilbaka. ATH. ÞAÐ ÞARF AÐ SKRÁ SIG HJÁ SVÖLU Í .IS Í SÍÐASTA LAGI MIÐVIKUDAGINN 3. DESEMBER. ÞAÐ ER OPIÐ 16.00 - 22.00!
 
 

Lasertaginu aflýst

 
Ákveðið var að fresta förinni í Lasertagið góða vegna veðurs en það kom eins og allir vita almennileg snjókoma um síðustu helgi og því var snjóbrekkan í Hlíðahverfinu í forgangi síðasta mánudag. Snjórinn kemur og fer en Lasertag verður alltaf á sínum stað þannig að við stefnum á að fara fljótlega eftir áramót! Fylgist vel með auglýsingu á gulu töflunni á ganginum!

Nema Hvað!

 
Við ætlum að vera í jólaskapi á opnun í dag og hlusta á jólalummur og mála Sveinka og Snæfinn og fleira jólalegt á rúðurnar á unglingaganginum.
 
Einnig verður haldin undankeppni fyrir spurningakeppnina "NEMA HVAÐ"! Fjörið byrjar klukkan 19.30!
 
Allir velkomnir!

Myndir Myndir Myndir

 
Það er komið fullt fullt fuuuuuuullt af nýjum og gömlum myndum inn í albúmið okkar! Rósaballið, Hrollur, Pógó-manía og jólalistaverkin okkar á ganginum. Skoðið og njótið og ekki gleyma að láta alla sem þið þekkið vita af fínu fínu heimasíðunni okkar!
 
 

Lasertag önnur tilraun!

 
Við ætlum í Lasertag á morgun og þeir sem hafa skráð sig þurfa að mæta kl. 18.30 á ganginum. Þetta kostar 1.500 kall og í því er innifalið strætó, lasertag og pizza! Þetta verður gaaaaaaaaaaaaaaman!
 
Þeir sem hafa ekki áhuga á að fara í Lasertag eru velkomnir að prufa nýju spilin okkar í félagsmiðstöðinni og jafnvel hjálpa til að skreyta fyrir jólaballið sem verður á fimmtudaginn.

Gleðilegt 2009!!!!!!!!!

 
Jæja þá er komið alveg splúnkunýtt ár og það heitir 2009! Það leggst bara vel í okkur og við ætlum að tileinka fyrstu opnun ársins, sem er í kvöld 5 janúar í spilakvöld... hlustum á tónlist og spilum Actionary og Jungle Speed! Svo er líka eins gott að við höldum okkur við í Pógóinu!! :) 
 
Opnunartími er 16.00 - 18.00 (og síðan er lokað fyrir fundarhöld starfsmanna og annað) Seinni opnunartími er 19.30 - 22.00!
 
PS. Það er Opið Hús miðvikudaginn 7. janúar og 9. janúar líka!!! Vei!!! :)
 
Hlökkum til að sjá ykkur!
 

Söngkeppni Kamps - viltu taka þátt?

 
Nú viljum við hvetja alla söngvara og söngkonur í Hlíðaskóla að taka skarið og skrá sig í Söngkeppni Kamps sem verður haldin í Austurbæjarskóla, föstudaginn 23. janúar!
 
Hún er undankeppni fyrir Söngkeppni Samfés sem verður haldin í Laugardalshöll 20. -21. febrúar! Hægt er að skrá sig hjá Svölu á opnun í félagsmiðstöðinni eða í hádeginu í skólanum þriðjudaginn 13. janúar.
 
Allir sem hafa gaman af því að standa upp á sviði og leyfa englaröddinni að óma út í sal eiga ekki að hika við að skrá sig og taka þátt!
 
Athugið að það er aðeins verið að dæma sönginn og nánari upplýsingar um keppnisfyrirkomulag má lesa hérna á síðu Samfés. Ef einhverjar spurningar eru má hafa samband við Svölu!
 
Ykkur er svo mjög svo velkomið að koma til okkar á opnun í félagsmiðstöðinni til að æfa ykkur inn í sal. Bara að tala við Svölu eða Kristinn fyrst! :)))

Nema Hvað? á miðvikudaginn!

 
Nú fer að styttast í að Spurningakeppni ÍTR fyrir grunnskólana í Reykjavík "Nema hvað?" 2009 fari af stað. Miðvikudaginn 14. janúar mun borgarhluti 1 spreyta sig í Félagsmiðstöðinni Frostaskjóli, sem er í Vesturbænum. Sjá tímasetningar neðan:
 
Borgarhluti 1, miðvikudaginn 14. janúar í félagsmiðstöðinni Frostaskjóli
Kl. 19.00  Hagaskóli - Tjarnarskóli
Kl. 19.45  Landskortskóli - Hlíðaskóli
Kl. 20.30  Háteigsskóli - Austurbæjarskóli
 
Nánari upplýsingar um keppnina má finna hér
 
Allir sem vilja vera áhorfendur og styðja við liðið úr sínum skóla mæta í sína félagsmiðstöð til að vera samferða. Talið við starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar til að fá nánari upplýsingar um hvenær á að mæta og fylgist með auglýsingum í skólanum :)
 
ATH! Það þarf að taka pening með fyrir strætó báðar leiðir!
 
 
 

Nema hvað? Í kvöld!

Í kvöld, 21. janúar, fer fram önnur umferð borgarhluta 1 í spurningakeppninni Nema hvað. Hún fer fram í félagsheimilinu 105, Háteigsskóla og takast á annarsvegar Hlíðaskóli og Tjarnarskóli og hinsvegar Hagaskóli og Háteigsskóli. Keppnistímar eru sem hér segir:
 
Borgarhluti 1 - miðvikudaginn 21. janúar í félagsmiðstöðinni 105 í Háteigsskóla
Kl. 19.30 Hlíðaskóli og Tjarnarskóli
Kl. 20.15 Hagaskóli og Háteigsskóli
 
.is mælist til þess að hist verði í félagsmiðstöðvinni ekki síðar en klukkan 19.00, lagt verður af gangandi af stað klukkan 19.10.

Wiikvöld í kvöld!

Í kvöld, mánudaginn 26. janúar, ætlum við að halda okkur á léttu nótunum, Wii-tölva sett af stað um hálf átta og vonumst við til þess að sem flestir mæti og spili Donkey Kong Jet Race og/eða Wii-sports.
 
 

Úrslit, Nema hvað? Í kvöld!

Í kvöld, miðvikudaginn 28. janúar, keppir Hlíðaskóli á móti Hagaskóla á heimavelli þeirra í Frostaskjóli. Sigurvegarinn í þessarri keppni verður framlag Borgarhluta 1 í áframhaldandi keppnisstand.
 
Mikilvægt er að við hópumst í Frostaskjólið og styðjum okkar lið!
 
Hittumst klukkan 19.00 í .is. Lagt verður af stað alls ekki seinna en 10 mínútum yfir.

Spilerí í kvöld!

Í kvöld verða öll möguleg spil dregin fram og spiluð milli 19.30 og 22.00. Ef þið eigið einhver spil heimavið sem þið mynduð gjarnan spila þá er ekkert sjálfsagðara en að þið komið með þau líka.

Pógó á föstudögum!

Á föstudögum héðan í frá verður opinn Pógóklúbbur á föstudagskvöldum frá 20.00.
Vonandi sjáum við sem flest þar í keppnisskapi.

Regndropar til sýnis. Verk Listaklúbbs .is

 
Á hlekkinum hér að ofan má m.a. sjá (fyrsta myndin) verkið sem Listaklúbburinn í .is gerði fyrir Vetrarhátíð. Verkið heitir Regndropar. Verkin verða til sýnis fram til 23. mars í Þjónustumiðstöð Miðborgar- og Hlíða á Skúlagötu.

Ball - Ball - Ball

Í dag kl. 17.00 byrjum við að selja miða á sameiginlega ballið hjá Kampi. Það kostar bara100 kr inn. Einugis er hægt að fá miða á ballið í Punktur IS og ekki við innganginn á míðvikudaginn. Þema ballsins er Greese. Komdu við í kvöld og tryggðu þér miða :)

Greese ball 11. mars

Loksins er stundinn runnin upp. Greese ballið er á morgun, miðvikudaginn 11 mars. Mæting í Punktur IS kl.19.15. Þá fáum við miðana okkar og löbbum saman niður í 105. Ballið er búið kl. 21.30 og 105 ætlar að vera með frábæra sjoppu á staðnum. Allir sem eru búnir að skrá sig á ballið, mæting kl. 19.15 í Punktur IS.

Músiktilraunir 2009

 Þeir sem hafa áhuga að taka þátt í Músiktilraunum í ár er bent á að fara inn á www.musiktilraunir.is og nálagst upplýsingar þar. Síðasti skráninga dagur er föstudaginn 13. mars.

Myndir frá Greese ballinu eru komnar í myndaalbúmið

 Jei myndirnar frá hinum stórfenglega Greese balli sem var á síðasta miðvikudag eru komnar  inn á heimasíðuna. Eina sem þú þarft að gera til að skoða þær er að klikka á myndir hérna til vinstri á síðunni og VOLA.

Býr tónlistarmaður í þér?

 Föstudaginn 20. mars ætla félagsmiðstöðvarnar í Kampi að halda sameiginlegt tónlistarkvöld. Allir sem eru í 8 - 10 bekk fá tækifæri til að spreyta sig. Eina sem þú þarft að gera er að skrá þig og atriðið þitt í Punktur IS. Tónlistarkvöldið verður haldið í bíósal 100og1 og byrjar kl. 20.00.

Tónlistar - kósý - kvöld

Föstudaginn 20. mars verður tónlistar - kósý kvöld hjá öllum félagsmiðstöðunum í Kampi. Kvöldið byrjar kl. 20.00 í 100og1. Við ætlum að bjóða upp á heitt kakó og vöflur með sultu og rjóma. Það kostar ekkert inn. Og við ætlum bara að chilla og hlusta á góða tónlist. Ef þig langar að taka þátt þá er bara að láta okkur vita. Hægt er að koma fram með ljóð, gjörning eða hljómsveit. Sjáumst. :)

Nýr Buzzleikur

Gleði, gleði við erum loksins búin að fá Hollywood Buzz. Vhúhú :) Komdu í heimsókn í kvöld og prófaðu nýja leikinn. Við opnum kl. 16. Erum svo með opið til kl. 22 í kvöld.

Við fáum heimsókn

 Miðvikudaginn 25. mars ætlar félagsmiðstöðin 105 að koma í heimsókn til okkar. Þau mæta til okkar um kl. 20.00. Við ætlum að taka vel á móti þeim og sýna hvað við erum skemmtileg. Allir að mæta :)

Hitum upp fyrir árshátíðina

Þessa viku ætlum við að hita upp fyrir árshátíðina. Byrjum á því að skreyta og ræða í hverju við ætlum að vera. Á miðvikudaginn 1 apríl fáðum við heimsókn frá Body shop sem ætlar að kenna okkur hvernig maður hreinsar húðina og málar sig. Við bjóðum upp á ávexti og djús. Og hver veit nema hann Þórgnýr sé tilbúin að taka okkur í smá danskennslu.

DUMB AND DUMBER

  Föstudagskvöldið 3.apríl ætlum við að slaka á eftir vikuna með því að koma okkur vel fyrir í sófanum með teppi, púða, popp og djús. Setjum svo Dumb and Dumber í tækið og hlæjum okkur máttlausa. Við opnum kl. 18.00 og myndin fer í tækið um kl. 20.00. Láttu sjá þig :)

Borðtennis, playstation og tsjill!

Í kvöld tökum við því rólega yfir playstation og/eða tökum almennilega keppni í borðtennis. Helga er í fríi en restin af krúinu verður á staðnum í keppnisstuði! Sjáumst fersk!
 
punktur IS krúið
[ MEIRA ]

Í dag..

..tekur Linux-klúbburinn LOKSINS til starfa. Nerðirnir hittast klukkan 17.00 í punktur IS og kíkja á hugbúnaðinn hjá hvorum öðrum og skiptast á ráðum og þekkingu.
 
Um kvöldið tekur síðan við spilakvöld og heitt kakó verður í boði.

SJÓSUND

Miðvikudaginn 15. apríl ætlum við í Punktur Is að skella okkur í sjósund. Já þú last rétt Sjósund. Við mætum í Punktur Is kl. 17 og leggjum af stað niður í Nauthóslvík 17.15. Það verður heitur pottur og heitar sturtur á staðnum til að hlýja sér á eftir sjóbaðið. Við bjóðum upp á heitt kakó. Komið með grillmat því það verður grill á staðnum.

UNICEF KVÖLD

  Föstudagskvöloið 17.apríl ætla félagsmiðstöðvarnar í Kampi að halda Unicef kvöld í Punktur IS. Kvöldið byrjar kl. 18 og endar kl. 20. Fulltrúi frá Unicef ætlar að koma í heimsókn og segja okkur frá samtökunum. Einnig fáum við að vita allt um sumardaginn fyrsta og prógrammið sem Kampur og við í félagsmiðstöðvunum æltum að vera með til styrktar Unicef. Hóparnir sem hafa verið að búa til boli og þrautabrautir muna segja okkur frá hvað þau eru búin að vera að gera. Ávextir og djús í boði. Láttu sjá þig.

Wii - keilumót

 Í dag ætlum við að fara í keilu. Ó já keilu en ekki venjulega keilu samt, ætlum að halda keilumót í Wii keilu. Já komdu og skoraðu á starfsmennina í keilu.

Myndir frá Sumardeginum fyrsta

Myndir frá Sumarhátíð Kamps á Miklatúni eru komnar í myndalbúmið. Hátíðin tókst eins og best verður á kosið og unlingarnir í félagsmiðstöðvum Kamps stóðu sig ótrúlega vel.  Einnig var skemmtileg frétt um okkur á stöð tvö og hægt er að skoða hana á www.visir.is 

Ratleikur í Punktur IS

Miðvikudagskvöldið 29. apríl verður ratleikur í Punktur IS. Leikurinn byrjar kl. 19.30 í félagsmiðstöðinni. Það geta max verið þrír í liðnum og hvert lið fær einnota myndavél. Og  liðið fær svo ákveðin verkefni sem það þarf að leysa. Úrsltin verða svo kunngjörð á mánudaginn 4. maí þegar dómnefnd hefur lokið að skoða myndirnar. Í verðlaun er boðsmiðar í bíó á mynd af eiginvali fyrir alla meðlimi í liðinu.  Komdu og vertu með :)

Ljósmyndir frá ratleiknum

Kíkið í myndaalbúmið okkar og skoðið myndirnar frá Ratleiknum fræga. Þetta var ótrúlega skemmtilegur leikur og við bíðum spent eftir því að myndirnar komi úr framköllun. Úrslitin verða tilkynnt á miðvikudaginn 6. maí kl. 20.00 í gegnum Facebook. Vinningshafarnir geta sótt vinningin sinn í Punktur IS mánudagskvöldið 11. maí.

Ert þú í 7. bekk?

   
Ef þú ert í 7. bekk ert þú velkomin í heimsókn í Punktur Is miðvikudaginn 6. maí frá kl. 16 - 22. Við ætlum að spila borðtennis, fótboltaspil og playstation. Komdu og heilsaðu upp starfsfólkið og sjáðu staðinn sem þú getur hangið á frá og með haustinu. :)

Úrslitin úr Ratleiknum!!!

 Jæja þá er dómnefnd búin að ljúka sínum störfum. Þetta var erfitt val og var mikið rifist í dómnefndinni. Plaggöt með myndum úr Ratleiknum hanga uppi á auglýsingatöflunni á unglingaganginum. Úrslitin eru eftirfarandi:
Litlu lömbin í Addidasbolum með 104 stig
Ninja extreme með 103 stig
Drullumaurarnir með 99 stig
TÓT með 96 stig
A-teame með 90 stig
Bleiki tannburstinn með 84 stig
Daðskítur með 22 stig
 
Óskum Litlu lömbunum til hamingju með sigurinn. Lömbin geta sótt vinningin sinn í Punktur IS á mánudagskvöldið :)
 

WII KVÖLD

Í kvöld ætlum við að slaka á í sófanum í vonda veðrinu, með Wii tölvuna. Við bjóðum upp á heitt kakó með rjóma og hver veit nema það verða nokkrar kexkökur líka í boði. Komið og eigið rólega, fallega stund með okkur í Punktur IS :)

Sjósund og Pógómót

Miðvikudaginn 13. maí ætlum við að skella okkur í sjósund. Hittumst kl. 17.00 í Punktur Is og löbbum niður í Nauthólsvík. Við bjóðum upp á heitt kakó og rjóma. Grill veðrur á staðnum ef þið viljið koma með pylsur. Svo kl. 19.30 þá kemur 100og1 niður í Nauthólsvík og við æltum að fara í Pógókeppnina miklu. Komdu og vertu með :)

Sumargleði á Klambratúni

Föstudagskvöldið 15 maí ætla félagsmiðstöðvarnar í Kampi að gera sér glaðan dag á Klambratúni. Margt skemmtilegt verður í boði eins og skókast, vatnsdrykkjukeppni, parís, körfubolti og fótbolti. Við grillum pylsur og myndum bros dagsins. Við hittumst í Punktur Is kl. 18.00 og löbbum saman niður á Klambratún. Sjáumst :)

Úti í sólinnni :)

Vá hvað það er gott veður í dag. Af því tilefni ætlum við sko ekki að hanga inni heldur vera úti að leika okkur. Komdu með fótbolta, körfubolta, skotbolta, sippuband og allt annað sem þér dettur í hug. Og við leikum okkur saman á skólavellinum.

Sundlaugarpartý

Föstudaginn 29. maí ætla félagsmiðstöðvarnar í Kampi að kveðja veturinn með því að halda sundlaugarpartýi í Sundhöll Reykjavíkur. Partýið byrjar kl. 21.00 - 23.00. Það er ókeypis inn og við ætlum að bjóða upp á svala, nammi og ananas. Við ætlum að hafa dýfingarkeppni með fjrálsri aðferð. Og endilega komið með forskalappir eða sundbolta. Hlökkum til að sjá ykkur.

Pógó í dag kl. 16.00

Í dag ætlum við að hittast í 100og1 sem er Austurbæjarskóli og spila Pógó. Allar félagsmiðstöðvarnar ætla að koma saman og spila og leika sér úti í dag. Við hittumst kl. 16.00 og allt er búið kl. 18.45. Komdu og vertu með :)

105 opið 9. og 11. júní

Hæhó!
11. júní;
Minnum á; hjólreiðaferð! mæta kl. 16-16:20 í 105 á hjóli og með smá nesti.  Ekki slæmt að hafa sundskýlu með og handklæði ef við förum í sjósund! 
Láttu sjá þig :-) - allir velkomnir, frá Punktur Is og 100og1.
Liðið
Hrefna s:6955216
p.s. ertu ekki örugglega búin að skrá þig á fésbók félagsmiðstöðvanna? það er klárlega það sem þú þarf að gera............

Hjólreiðaferð með félagsmiðstöðvunum

Fimmtudaginn 11. júní ætla félagsmiðstöðvarnar í Kampi að skella sér í hjólreiðatúr um hverfið okkar. Hittumst í 105 ( Háteigsskóla) kl. 16.00 og leggjum af stað kl. 16.30. Komð með nesti og eigið frábæran dag með okkur :)

Sundlaugin á Álftanesi

Í dag ætlum við að skella okkur í Sundlaugina á Álftanesi á félagsmiðstöðvaropnun. Sundlaugin þar er víst með stærstu rennibraut í heimi og nýrri öldulaug. Komið og tékkið á þessu með okkur. Það er mæting kl. 16.00 í 100og1 og þaðan röltum við á Hlemm og tökum strætó. Takið með sundföt og 100 kr og við borgum restina. Sjáumst :)

Vikan - félagsmiðstöðvaopnun

Við erum að fara í bíó á Hangover í Kringlubíó. Mæting í 105 kl. 17:15, förum í bíó sem byrjar kl. 18. Við förum undir yfirskriftinni ,,já" (yesman áhrif) og verðum spariklædd/Vegas þema. Allir velkomnir með. Mæta með kr. 1000 - og þið fáið miða, meðalstóran popp og meðalstórt gos fyrir allan peninginn.
 
 

Fjör í Siglunesi

 Í dag ætla félagsmiðstöðvarnar í Kampi að skella sér í Siglunes. Við hittumst í 100og1 kl.16 og tökum strætó frá Hlemmi niður í Siglunes. Þegar þangað er komið ætlum við að kveikja eld, baka pönnukökur, skella okkur í sjóinn eða pottin og fara á báta. Eina sem þú þarft að taka með þér er sundföt, aukaföt og handklæði annað sjáum við um. Allir að kíkja :) 

Félagsmiðstöðvaopnanir vikunnar!

Síðustu félagsmiðstöðvaopnanir sumarsins eru í þessari viku!
Síðasti sénst að vera með....
Dagskráin;
Þriðudag 7. júlí; Mæta í 105 kl. 16; með 500 kr. Við ætlum í LASERTAG! innifalið í 500 kr. er strætómiðar báða leiðina, 2 leikir, pizzusneið og gos! 
 
Fimmtudag 9. júlí; Sýning í Glerskála 105/Háteigsskóla á afraksti sumarhóps ÍTR. Förum út í körfu og pókó!
Hlökkum til að sjá þig!

Skapandi hópar halda sýningar

  
Í sumar hafa verið starfræktir tveir skapandi hópar á vegum Kamps sem munu sýna afkrasktur sumarsins. Hóparnir eru skipaðir unglingum úr hverfinu sem voru að ljúka við 8 og 9. bekk. Í ár voru hóparnir kynjaskiptir og tókustu á við mismunandi verkefni með skapandi ívafi.

 

Stelpuhópurinn mun sýna ljósmyndir og uppgerða stóla á þriðjudaginn 7. júlí í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3 – 5 upp á þriðju hæð. Sýninging er opin milli kl. 11 og 12 og léttar veintingar verða í boði.

 

Strákahópurin sýnir boli, ljósmyndir og málverk miðvikudaginn 8. júlí í Þjónustumiðstöð Miðborga og Hlíða að Skúlagötu 21. Sýningin er milli kl. 11 og 12 og léttar veitingar verða í boði.

Opnum dyrnar......

Jæja þá er loksins komið að því sem allir eru búnir að vera að bíða eftir. Já við erum að tala um það að Punktur IS er að fara að opna aftur. Mánudagskvöldið 31. ágúst kl. 19.30 opnum við dyrnar fyrir ykkur sem eru í 8 - 10. bekk. Kíkið á okkur og takið einn leik í borðtennis, buzz og spjallið við nýja starfsfólkið :)

WII KVÖLD

Við æltum að skemmta okkur í Wii leikjum á miðvikudagsopnunni. Við erum búin að fá nokkra nýja leiki. Komið við og tékkið á þessu. Einnig eru nokkrir nýjir starfsmenn byrjaðir í félagsmiðstöðinni og þeim þætti vænt um ef þú kæmir og heilsaðir upp á þá. Við opnum kl. 17. 00 miðvikudaginn 2. september.

8. bekkjaropnun

Mánudaginn 7. september ætlum við að bjóða 8. bekkinga sérstaklega velkomna í Punktur Is. Við opnum kl. 16 og lokum kl. 18.00. En opnum svo aftur kl. 19.30 - 22.00. Í félagsmiðstöðinni er meðal annars hægt að fara í borðtennis, fótboltaspil, playstation, teikna, spila og að sjálfsögðu hitta hið frábæra starfsfólk. Okkur hlakkar til að sjá þig :)

Opnun á miðvikdudaginn :)

Miðvikudaginn 9. sept verður mikið gaman og mikið fjör hjá okkur. Við opnum kl. 15, já þú last rétt kl. 15 og erum með opið til kl. 19.00.  Á þessum tíma ætlum við að hafa fótboltaspilamót.  En það verður líka hægt að fara í borðtennis og playstation. Starfsfólkið skorar á þig í leik í fótboltaspilinu :) 
Við munum svo opna aftur kl. 19.30 og þá ætlum við að koma okkur vel fyrir í sófanum með púða og teppi. Og setja eina mynd í tækið. Myndin fer í tækið kl. 20.00. Hlökkum til að sjá ykkur.

Kappát og gleði

Mánudaginn 14. september ætlum við að hafa opið hús í Punktur Is kl. 16.00 - 18.00 Þá er hægt að fara í borðtennis, fótboltaspil, playstation, læra og bara spjalla við starfsfólkið. Seinni opnunin byrjar kl. 19.30 - 22.00. Þá ætlum við að fara í smá leik, nefnilega kappát. Jú, jú bara gleði og læti. Hlökkum til að sjá þig :)

Miðvikudagsopnun

Miðvikudaginn 16. september opnum við kl. 15.00 og höfum opið til kl. 19.00. Við ætlum að leika okkur í borðtennis, playstation, teikna og í sprengjuspilinu. Á seinni opnunninni ætlum við að hafa ógeðsdrykkjaleik. Þetta verður fallegasti, æðislegasti og frábærasti drykkur sem hefur sést í langan tíma. Þorir þú að smakka???

Singstarkvöld

Í dag opnum við kl. 16 - 18.00. Þá er hægt að spjalla við starfsfólkið, læra, spila borðtennis, teikna, spila eða bara slaka á í sófanum. Við opnum svo aftur kl. 19.30 og þá ætlum við að hafa Singstar þema. Syngjum eins og við getum. Og það verða verðlaun í boði :) Kíktu við.

Myndir, myndir

 Tékkaðu á nýju myndunum frá Kappátinu. Þú finnur þær undir myndir 2009 :)

Guitar hero kvöld

Mánudaginn 28. sept opnum við kl. 16 til 18.00. Þá verður almennt chill í gangi - spilað og spjallað. Kvöldopnunin hefst svo kl. 19.30 til 22.00. Þá verður þema kvöldsins Guitar hero. Jebbs, kíktu við og láttu ljós þitt skína :)

Kökur og gleði

Við ætlum að enda september með stæl og búa til kökur á miðvikudaginn 30. sept. Við opnum kl. 15.00 og höfum opið til kl. 19.00. Þá tökum við upp súkklaði, síróp, muffinsform og annað góðgæti og búum til súkkulaði Rice krispí kökur. Um kvöldið opnum við svo kl. 19.30 til 22.00 og þá ætlum við að BORÐA  allar þessar kökur :) Jahú!! Komdu og vertu með.

Föstudagsopnun

Föstudaginn 2. okt er okkur boðið í   Te- heimsókn í 105. Húsið opnar kl. 18.30. Það verður margt skemmtilegt í boði.
  • Komið með eigin te- bolla og te- blöndur.
  • Fótbolti í sokkurm!! Skráið ykkur í lið og prófið að taka þátt í sokkafótbolta.
  • Bíó - eitthvað skemmtilegt verður í gangi á skjánum
  • Svo verður líka hægt að fara í borðtennis, spjalla og tsjilla bara.

Hlökkum til að sjá ykkur :)

Opið Hús í Kvöld :)

Í dag opnum við Punktur Is kl. 16 til kl.18.00. Spjall, spil og almenn afslappelsi í gangi.
Seinni opnuninn byrjar svo kl.19.30 til 22.00. Kíktu í heimsókn og taktu einn leik í borðtenns, fótboltaspilinu eða buzzinu.

Náttfataþema í kvöld

   Við opnum kl. 15.00 í dag til kl. 19.00. Spjall, spil, borðtennis og skemmtilegt starfsfólk. Við opnum svo aftur kl. 19.30 og þá verður NÁTTFATAÞEMA. Við ætlum að liggja í sófanum og spjalla, spila og drekka heitt kakó með rjóma :) 

Strákakvöld

Í dag, mánudaginn 12. október, opnum við kl. 16. Þá ætlum við að spila nýja spilið sem við vorum að kaupa, ótrúlega spennandi lestarspil. Einnig verður hægt að hlusta á tónlist, liggja í sófanum eða spila borðtennis. Við lokum svo kl. 18.00 ENNNNNN við opnum aftur kl. 19.30 og þá bara fyrir STRÁKANA. Já við ætlum að hafa strákakvöld með Nedd for Spedd á stór skjá, borðtennismót og svo ætlum við líka að þrykkja á boli. Komdu með þinn eiginn bol og prófaðu að setja kúla mynd eða texta á hann. :) 

Strákakvöld

Í dag, mánudagn 12. október, opnum við kl. 16. Þá ætlum við að spila nýja spilið sem við vorum að kaupa, ótrúlega spennandi lestarspil. Einnig verður hægt að hlusta á tónlist, liggja í sófanum eða spila borðtennis. Við lokum svo kl. 18.00 ENNNNNN við opnum aftur kl. 19.30 og þá bara fyrir STRÁKANA. Já við ætlum að hafa strákakvöld með Nedd for Spedd á stór skjá, borðtennismót og svo ætlum við líka að þrykkja á boli. Komdu með þinn eiginn bol og prófaðu að setja kúla mynd eða texta á hann. :) 

Myndir frá strákakvöldinu

Það eru komnar inn myndir frá strákakvöldinu sem við vorum með í gær. Tékkið á þessum frábærum myndum í myndaalbúminu okkar hérna til hliðar :)

Stelpukvöld

Miðvikudaginn 14. okt opnum við kl. 15.00 til 19.00. Þá verður hægt að spreyta sig í nýja skemmtilega lestarspilinu okkar, spila borðtennis eða bara hanga upp í sófa. ENNNNN kl. 19.30 byrjar hið margumtalaða STELPUKVÖLD hjá okkur. Þá verður meðal annars Sings starið á fullu, veitingar og við ætlum að þrykkja/stimpla á boli. Komið með gamlan bol og setjið á hann flottan texa eða myndir. Ef þið eigið ekki bol ætlum við að selja boli á staðnum fyrir 300 kr stykkið. Hlökkum til að sjá ykkur :)

Myndir

Við erum búin að setja inn myndir frá stelpukvöldinu sem var í gær. Kíkið í myndaalbúmið hérna til hliðar :)

Bingó

Í kvöld verður sameiginleg opnun allra félagsmiðstöðva Kamps haldin í Punktur Is. Og við ætlum að hafa Bingó með skemmtulegum vinningum. Húsið opnar kl. 19.30 og Bingóið hefst kl. 20.00. Spjaldið kostar 100 kr. Komið og verið með :) 

Fifakvöld

 Í dag opnum við kl. 16.00 - 18.00. Þá verður almennt chill í gangi - setið og spjallað, spilað og annað slíkt. Við opnum svo aftur kl. 19.30 og þá ætlum við að missa okkur í Fífa leiknum. Endilega komið og kíkið á okkur :)

Fanboys

Við opnum kl. 15.00 í dag með almennu chilli og gleði. Seinni opnunin byrjar svo kl. 19.30. Á henni ætlum við að koma okkur vel fyrir undir teppi upp í sófa og setja myndina FANBOYS í tækið. Popp og djús verður einnig í boði :)

GÚFFKVÖLD

Húsið opnar kl. 19.30 í kvöld og þá byrjar hið margumbeðna GÚFF kvöld. Komdu með uppáhaldsmatinn þinn, nammið, kökuna, nestið og GÚFFAÐU Í ÞIG  hjá okkur. Við liggjum svo södd og sæl á eftir í sófanum.

SINGSTAR KVÖLD

Miðvikudaginn 28. okt opnum við kl. 15 til 19.00. Almennt chill í gangi, spilum, hlustum á tónlist, tökum einn need for speed leik. Við opnum svo aftur kl.19.30 og þá verður SINGSTAR GEÐVEIKI! Við höfum fjárfest í nýjum leikjum svo þetta verður bara gaman. Komdu og láttu ljós þitt skína :)

Skrekkur

Við byrjum að selja miða á Skrekk fyrir 8 - 10.bekk í Hlíðaskóla, mánudaginn 2. nóvember í Punktur Is kl. 15.30. Miðinn kostar 700 kr og er einungis hægt að kaupa miða fyrir sjálfan sig. Hlíðaskóli mun keppa í Skrekki þriðjudaginn 11. nóvember. Komdu og fáðu þér miða!!

Sameiginleg opnun í kvöld

Í kvöld verður sameiginleg opnun með öllum félagsmiðstöðvunum í Kampi. Við byrjum kl. 19.00 í Austurbæjarskóla. Það verður körfubolti og fótbolti í gangi. Mega mikið fjör. Komdu og taktu þátt í skemmtilegum leikjum :)

Félagsmiðstöðvardagurinn 4. nóvember

Miðvikudaginn 4. nóvember standa félagsmiðstöðvar ÍTR fyrir félagsmiðstöðvadeginum í Reykjavík. Dagurinn er samstarfsverkefni þeirra 23 félagsmiðstöðva sem starfa í Reykjavík og verða allar félagsmiðstöðvarnar opnar fyrir gesti og gangandi milli kl. 18 og kl. 21 þennan dag.

Félagsmiðstöðvadagurinn er nú haldinn sjötta sinn. Markmið hans er að gefa áhugasömum færi á að heimsækja félagsmiðstöðina í sínu hverfi, kynnast því sem þar fer fram, unglingunum í hverfinu og þeim viðfangsefnum sem þeir fást við með stuðningi frístundaráðgjafa í félagsmiðstöðinni.

Unglingarnir og unglingaráð félagsmiðstöðvanna bera hitann og þungann af undirbúningi dagsins á hverjum stað ásamt frístundaráðgjöfum. Megináherslan er á framlag og sköpunargleði unglinganna sjálfra enda unglingar eitt af mótandi menningaröflum samstímans og framtíðar.
 
Ung blaðið er gefið út í tilefni dagsins, smelltu á myndina af stúlkunni sem er að taka mynd af þér og þá færð þú upp blaðið.
[ MEIRA ]

Breytingar í Punktur Is

Þessa dagana eru miklar breytingar í gangi hjá Punktur Is. Við höfum fengið annað heimili til afnota á kvöldopnunum hjá okkur. Húsið kallast Ýmisshúsið og er til húsa að Skógarhlíð 20. Punktur Is fær afnot af fyrstu hæðinni í því húsi. Þar er nóg pláss fyrir okkur og höfum við aðgang að eldhúsi og blijardborð til mikillar gleði fyrir alla. Við erum smátt og smátt að koma okkur fyrir og hefur Punktur Is unglingaráðið meðal annars verið að mála og gera fínt. Hér eftir verða dagopnanir okkar á ganginum í Hlíðaksóla frá kl. 15.00 - 18.00 á mánudögum og miðvikudögum. Kvöldopnanir verða frá kl. 19.30 - 22.00 á mánudögum og miðvikdudögum, í Skógarhlíð 20. Hlökkum til að sjá ykkur á nýja heimilinu okkar :)

Hilmarinn 2009

Stundin er runnin upp. StuttmyndahátíðinHilmarinn er á föstudaginn 13. nóvember, haldin að þessu sinni í hátíðarsal Háteigsskóla. Húsið opnar 19:30, salurinn kl. 20:00.
Allir spariklæddir, rauður dregill og myndataka á dreglinum! Geggjaðir dómarar og kynnar...
[ MEIRA ]

STELPUR MÁLA STRÁKA OG STRÁKAR MÁLA STELPUR

Mánudaginn 16. nóv opnum við kl. 15 á ganginum í Hlíðaskóla. Við ætlum að selja miða á lokakvöldið í Skrekk. Við fáum um það bil 60 miða þannig að fyrstir koma fyrstir fá. Miðinn kostar 900 kr. Kvöldopnunin verður svo kl. 19.30 í Skógarhlíð 20. Þema kvöldsins verður stelpur mála stráka og strákar mála stelpur. Það stefnir í stórkostlega mánudagsopnun :)

Jólagjafasmiðjan byrjar

Nú er jólagjafasmiðjan byrjuð á fullu. Í Punktur Is þessa vikuna ætlum við að þrykkja á boli, nærbuxur eða bindi. Komdu með boli að heiman og þú borgar 200 kr og færð aðgang að þrykkbúnaðinum okkar. Ef þú átt enga boli er hægt að kaupa boli af okkur á 300 kr. Komdu og búðu til skemmtilegar jólagjafir handa vinum og vandamönnum.
 

Nýjar myndir

Við erum búin að setja myndirnar frá hinu frábæra kvöldi - STELPUR MÁLA STRÁKA OG STRÁKAR MÁLA STELPUR. Þið þurfið bara að klikka á myndir og velja 2009 og þá fái þið að sjá dýrðina :)

Jólagjafamsiðjan

Miðvikudaginn  25. nóvember heldur þrykk smiðjan áfram. Eina sem þú þarft að gera er að koma með 200 kr og þá hefður óheftan aðgang að þrykk dótinu okkar. Komdu með bol, hlýrabol, nærbuxur eða bindi og búðu til jólagjöfina handa vinum og vandamönnum. Ef þú átt ekki bol getur verslað bol af okkur fyrir litlar 300 kr.

Brjóstsykursgerð

Í dag mánudag 30. nóv, opnum við á gagninum kl. 15.00 - 17.00. Þá verður hægt að fara í borðtennis, palystation, spila og spjalla við hið frábæra starfsfólk. Kvöldopnunin byrjar svo kl. 19.30 í Skógarhlíð 20. Við ætlum að búa til brjóstskykur. Ó já þú last rétt, brjóstsykur í öllum regnboganslitum og með alls konar bragði. Eina sem þú þarft að gera er að mæta með 200 kr og þá geturu tekið þátt. Sjáumst :)

Brjóstsykurinn heldur áfram

Miðvikudaginn 2. desember opnum við kl. 15.00 á ganginum í Hlíðaskóla. Þar er hægt að fara í borðtennis, playstation eða spjalla við hið frábæra starfsfólk um lífið og tilveruna. Kvöldopnunin okkar byrjar svo kl. 19.30 í Skógarhlíð 20. Við ætlum að halda áfram með brjóstsykursgerðina. Eina sem þú þarft að gera er að borga 200 kr og þá getur þú búið til brjóstsykur með kók, epla, jarðberja eða lakkrísbragði. Komdu vinum og vandamönnum á óvart með heimagerðum brjóstsykri.

Skartgripagerð

Í dag, mánudaginn 7. des, opnum við kl. 15 á ganginum í Hlíðaskóla. Við æltum að missa okkur í Guitar hero og borðtennis. Kvöldopnunin byrjar svo kl.19.30 í Skógarhlíð 20. Við ætlum að halda áfram með jólagjafasmiðjurnar og að þessu sinni er það skartgripasmiðja sem verður í gangi. Komdu í Punktur Is og búðu til eyrnalokka, hring eða hálsmen handa mömmu, ömmu eða systu og gefðu í jólagjöf.

Heitt kakó og skartgripagerð

Við opnum kl. 15 í dag, miðvikudag 9. des, á ganginum í Hlíðaskóla. Við ætlum að missa okkur í snjóbrettaleiknum og gæa okkur á heitu kakói með rjóma. Hver veit nema við förum í eitt spil líka. Kvöldopnunin byrjar svo kl. 19.30 í nýja húsinu okkar. Þar verður hægt að búa til skartgripi, fara í biljard og spjalla við frábært starfsfólk. Komdu í heimsókn :)

Sameiginleg opnun í kvöld

Í kvöld, föstudaginn 11. des, verður sameiginleg opnun í 100og1 með hinum féalgsmiðstöðvunum í hverfinu. Við ætlum að spila og spjalla. Boðið verður upp á mallt og appelsín og smákökur. Komdu í góðan fíling í 100og1. Húsið opnar kl.19.00 og lokar kl.22.00 :) 

Skreytum bolla og könnur

Miðvikudaginn 16. des, opnum við kl. 15 - 18.00 á ganginum í Hlíðaskóla. Hægt verður að fara í borðtennis, playstation og ekki minnst prófa nýju spilin sem við vorum að kaupa.
Kvöldopnunin byrjar svo kl. 19.30 í nýja húsinu okkar. Við ætlum að skreyta bolla, diska, skálar og könnur. Já eina sem þú þarft er að koma með 200 kr og þá getur skreytt fínar jólagjafir.  Láttu sjá þig :)

Skautaferð

Í dag, mánudaginn 28. des, ætlum við í Punktur Is að skella okkur á skauta með hinum félagsmiðstöðvunum í hverfinu þar að segja 100og1 og 105. Við hittumst upp í skóla kl. 13.30. Eina sem þú þarft að koma með eru 400 kr.

 Og þá færð þú: strætómiða fram og tilbaka
                          inngang inn á svellið
                          skauta ef þig vantar
                          heitt  kakó
                          kex
og gleðina af að hitta starfsfólkið og hinar félagsmiðstöðvarnar :) 

Brjóssykursgerð

Á miðvikudaginn 20. janúar, byrjum við dagopnunina kl. 15.00 á ganginum. Við erum búin að fá nýjan starfsman þannig að það væri kjörið að kíkja við og skora á hann í borðtennis. Við byrjum svo kvöldopnunina okkar kl. 19.30 og þá ætlum við að búa til nammi í öllum regnboganslitum. Eina sem þú þarft að gera er að koma með 200 kr og þá máttu gera eins mikið af brjóstsykri og þig listi. Við hlökkum til að sjá þig :) 

Skráning í Skíðaferð og undankeppni Samfés

Miðvikudaginn, 27. janúar, opnum við upp í skóla kl. 15.00. Endilega kíkið við og skráið ykkur til að taka þátt í undankeppni Samfés. Kampur heldur undankeppnina á föstudaginn 29. jan í 100og1. Það eru nokkur atriði komin úr Punktur Is en væri geðveikt ef við fengum fleiri. Við opnum svo kl. 19.30 í Ýmishúsinu. Og þá verður tekið við skráningu frá þeim sem eru í 10. bekk og vilja fara í skíðaferð með okkur. Að sjálfsögðu verður líka hægt að fara í biljard, borðtennis, playstation og að sjálfsögðu spjalla við yndislegt starfsfólk :)

Wii og gestur

Í dag, miðvikudaginn 3.feb, opnum við kl. 15.00 á ganginum og þá ætlum við að missa okkur í Wii tölvunni. Prófa nýja og gamla leiki. Við opnum svo kl. 19.30 í Ýmishúsinu og þá æltum við að teikna, mála, lita, spjalla og hafa það kósí. Við fáum gest í heimsókn sem ætlar að setjast niður með okkur og gefa okkur góð ráð þegar kemur að því að teikna og mála. Komdu og kíktu við :)

Gistiferð Kamps

Á morgun, föstudaginn 12. feb, ætlum við að fara út úr bænum með 10. bekkinga. Mæting er kl. 12.30 í Hlíðaskóla. Muna að pakka niður vasaljósi, svefnpoka, hlýjum fötum, kvöldmat og morgunmat. Við förum svo út úr bænum á vit óvissunnar en við getum lofað að það verður mikið aksjón og gleði. Komum svo heim á laugardagsmorgunin upp úr kl. 11.00. Hlökkum til að sjá ykkur öll :-)

Sápugerð í Punktur Is

Miðvikudaginn 24, feb opnum við á ganginum kl. 15.00. Við ætlum að missa okkur í Buzzinu, prjóna, drekka kakó, spila borðtennis og spjalla um heima og geima. 

Kvöldopnun byrjar svo kl. 19.30 í Ýmishúsinu en þá ætlum við að prófa að búa til sápur. Það gæti orðið eitthvað skrautlegt en pottþétt bara gaman. Það kostar 200 kr að vera með og þá máttu búa til eins margar sápur í öllum litum og lögun eins og þér dettur í hug. Komdu og kíktu á okkur :) 

Sjósund og íslenskar rúnir í Punktur Is

Miðvikudaginn 10. mars ætlum við að hittast upp í skóla kl.16.00 og rölta sem leið liggur niður í Nauthólsvík og skella okkur í pottinn og sjóinn. Þorir þú að synda í söltum sjó? Heitt kakó og kex fyrir þá hugrökku. Um kvöldið opnum við svo í Ýmishúsinu kl. 19.30 og þá fáum við gest í heimsókn sem ætlar að færða okkur um íslenskar rúnir og notkun þeirra. Þetta verður sepnnandi miðvikudagur hjá okkur í Punktur Is. Hlökkum til að sjá þig :)

Guitar hero kvöld

Mánudaginn 15.mars, opnum við á ganginum í Hlíðaskóla kl. 15.00 og þá ætlum við að prjóna, spila buzz og spjalla. Kvöldopnunin hefst svo kl.19.30 upp í Ýmishúsi og þá ætlum við að hafa Guitar hero keppni. Þorir þú að taka þátt? Það eru vegleg verðlaun í boði fyrir meistarann :-)

Slökunarkvöld í Punktur Is

Miðvikudaginn 17. mars, opnum við kl. 15.00 á ganginum í Hlíðaskóla. Þá er hægt að fara í borðtennis, spjalla, drekka kakó og spila spil við okkur starfsfólkið. Kvöldopnunin hefst svo kl.19.30 í Ýmishúsinu. Þema kvöldsins er Slökun. Við fáum gest í heimsókn sem æltar að kenna okkur að slaka á. Kertaljós og rólegheit. Ávextir fyrir alla sem kíkja í heimsókn.

Singstarkvöld í Punktur Is

Mánudaginn 22. mars opnum við kl. 15.00 á ganginum í Hlíðaskóla. Við ætlum að spila, drekka kakó og missa okkur í borðtennis. Kvöldopnunin hefst svo kl. 19.30 og þá verður Singstar keppni dauðans......Ó já hver verður meistarinn í Singstar? Verðlaun fyrir þann sem vinnur :-)

Upphitunarkvöld fyrir árshátíðina 2010

Miðvikudaginn 24. mars, opnunum við kl. 15.00 á ganginum í Hlíðaskóla. Þá verður allt að gerast enda árshátíðin á næsta leyti. Kvöldopnunin hefst svo kl. 19.30 upp í Ýmishúsi og þá heldur gleðin áfram. Við ætlum að hita upp fyrir árshátíðina. Strákarnir ætla að kenna okkur að binda bindishnút, straujaskyrtu og hvernig á að klæða sig. Mac kemur í heimsókn og æltar að kenna okkur stelpunum að mála okkur. Það verður tónlist og stuð. Ekki missa af þessu :-)

Kökukeppni í Punktur IS

Miðvikudaginn 14. apríl opnum við kl. 15.00 á ganginum í Hlíðaskóla. Þá ætlum við að hanga og spila kubb ef það er gott veður. Kvöldopnun hefst svo kl. 19.30 og þá verður KÖKUKEPPNI. Ó já - keppnin fer þannig fram að ÞÚ bakar heima einhverja glæsilega köku heima hjá þér og kemur með í Punktur Is þar sem útvalin dómnefnd smakkar og dæmir. Dæmt verður eftir: Besta bragðið, Frumlegasta kakan, Best skreytta og Ljótasta kakan.
Allir fá svo að smakka kökurnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum sínum.

Hnefaleikakynning í Punktur Is

Mánudaginn 19.apríl opnum við kl. 15.00 á ganginum í Hlíðaskóla. Þar æltum við að prjóna, teikna, spila kubb og jafnvel fótbolta ef sólin skín.
Kvöldopnunin hefst svo kl.19.30 upp Ýmishúsinu. Við munum fá gest sem ætlar að kynna fyrir okkur Hnefaleika. Nú er tækifærðið að fá að vita ALLT sem ÞIG hefur langað að vita um þessa íþrótt. Kíktu við :-)

Nýjar myndir inn á heimasíðuna okkar

Tékkið á nýju myndunum í myndaalbúminu hérna til hliðar. Erum búin að setja inn myndir frá upphitunarkvöldinu fyrir árshátíðina og kökukeppni. Njótið :-)

Oldschool kvöld í Punktur Is

Miðvikudaginn 12. maí verður opið hús á ganginum í Hlíðaskóla kl. 15.00- 19.00 þá ætlum við að fara með borðtennisborðið út í  garð , fótboltan og kubbið og skemmta okkur í sólinni.
Kvöldopnun byrjar kl. 19.30 í Ýmishúsnu og þema kvöldsins verður Oldschool kvöld. Förum í alla gömlu góðu leikina. Kíktu á okkur :-)

Vantsstríð á Klambratúni

Mánudaginn 17. maí opnum við á ganginum kl.15.00 - 18.00, þá er hægt að koma og spjalla við starfsmenn, prófa nýjan playstation leik og margt fleira. Kvöldopnunin byrjar svo kl. 19.30 upp í Ýmishúsi. Þema kvöldsins verður vatnsstríð. Við byrjum á að fylla á vatnsblöðrur og byssur og svo göngum við fylktu liðið á Klambratún þar sem við munum berjast af lífs og sálarkröftum.

Sjósund og Bíó kvöld

Miðvikudaginn 19. maí opnum við kl.15.00 á ganginum í Hlíðaskóla, við ætlum að skella okkur í sjósund í Siglunesi. Leggjum af stað kl.16.30 og verðum til kl.19.00 að baða okkur í sjónum og heita pottinum. Allir fá kakó sem þora að koma með okkur :)
Kvöldopnunin byrjar svo kl. 19.30 upp í Ýmishúsinu og þá æltum við að slaka á upp í sófa og horfa á vídeó, drekka djús og borða popp. Munum horfa á vídeó af stór skjánum inni í stofu :-)

Sundlaugarpartý í Sundhöllinni

Föstudaginn 21.maí verður sameiginleg opnun með öllum félagsmiðstöðvum Kamps. Það verður brjálað skemmtilegt sundlaugarpartý í Sundhöll Reykjavíkur. Ýmislegt  skemmtó veðrur í boði þetta kvöld. Mættu á staðinn og taktu þátt í gleðinni :-)

Gleðikvöld í Punktur Is

Miðvikudaginn 26. maí opnum við kl. 15.00 á ganginum í Hlíðaskóla. Komdu og hittu okkar frábæra starfsfólk í gleðinni. Kvöldopnunin byrjar svo kl.19.30 og gleðin mun halda áfram þar. Við ætlum að vera með grill á staðnum og sósur og læti. Þú þarft bara að koma með kjötmetið. Hátalara úti og Candý floss vél. Kubb og úti bandý. Þetta veðrur bara gleði og gaman :-)

Gleðikvöld í Punktur Is

Miðvikudaginn 26. maí opnum við kl. 15.00 á ganginum í Hlíðaskóla. Komdu og hittu okkar frábæra starfsfólk í gleðinni. Kvöldopnunin byrjar svo kl.19.30 og gleðin mun halda áfram þar. Við ætlum að vera með grill á staðnum og sósur og læti. Þú þarft bara að koma með kjötmetið. Hátalara úti og Candý floss vél. Kubb og úti bandý. Þetta veðrur bara gleði og gaman :-)

Sumarið er komið!

 
Ert þú búin að kynna þér hvað stendur þínu barni til boða í frítímastarfi í sumar í þínu hverfi?

Í boði:

Frístundaheimilin, sumarstarf fyrir börn fædd '00-´03

Sumarnámskeið fyrir börn fædd: '97 ,´98 og ´99

Smíðavöllur fyrir börn fædd: ´95 -´01

Félagsmiðstöðvar fyrir unglinga fædd ´92-´94 í Siglunesi og Ýmishús
Félagsmiðstöðvarnar í sumar:
Opið á mánudags og miðvikudagskvöldum í Ýmishúsi kl. 18:00-21:30 frá 2. júní - 7. júlí
Opið á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum í Siglunesi kl. 13:30-16:00 frá 14. júní - 9. júlí. Öll ungmenni í hverfinu velkomin fædd ´92 -´94.

Æðislegur dagur í kofanum við Siglunes

Hóhóhó... rice crispies kökur, jungel speed og hæ gosi í kofanum.... ekki missa af þessu! hver dagur í kofanum er ævintýri... og hvað þá ef við komumst á sjóinn og ströndina.  Sjáumst!
Tóta s:695-5075, Hrefna s;6955216, Gummi s:695-5215 og Árni
 
Sumarfélagsmiðstöð Kamps f 8.9. og 10. bekkinga hverfisins kl. 13:30-16:30 alla daga nema föstudaga í sumar!  MÆTA!

10. bekkjar kvöld í Siglunesi

Langar þig á kajak? sjósund? í heitan pott?
 
Nú er komið að því! allir 10. bekkingar í hverfinu halda upp á sumarið 2010 með því að skunda í Siglunes miðvikudaginn 30. júní kl. 17-20.
 
Mættu með aukaföt, handklæði og aukaskó og taktu vin þinn með! (10. bekking).
 
Kl. 17-19: erum út á sjó s.s. kajak, sjósund, heitan pott
Kl. 19-20: grillum. Þú mætir með það sem þú vilt á grillið (pulsur, samloku o.s.frv.)
 
Kostar ekki krónu! engin skráning, bara mæta og hafa gleðina með!