Hilmarinn 2009
Hilmarinn var á föstudaginn 13. nóv og var fullur salur og mikil stemming.
Stuttmynd ársins er;
Eftir höfðinu dansa limirnir, leikstjóri er Karitas, handritshöfundur er Karitas (sitt hvor Karitas!), upptaka; Magni, Leikarar; Vaka og Karítas.
Ungmenni úr 100og1 sem sagt fengu farandbikarinn Hilmarinn sem geymist hann fram til næsta Hilmars á áberandi stað í félagsmiðstöðinni 100og1!!! Innilega til hamingju öll!
Myndin Í skjóli nætur eftir Atla, Kristinn, Daníel, Gumma, Ingunni og Maríu í 105 fékk verðlaunin; hryllingur ársins (2. sæti), myndin Highschool bloodfeud eftir Val, Daníel, Ásu, Pétur og Hrafnkel fékk verðlaunin hljóð og stíll ársins (3. sæti) og í 4. sæti lenti myndin Brennidepill 100og1, heimildamynd eftir Emil, Snorra, Iðunni, Jöru, Kolbein, Karítas, Huldu, Berg og Birtu.
Frábært kvöld, frábærir kynnar, frábærir dómarar, dásamlegir vinningar, frábærir áhorfendur, frábærar niðurstöður! poppið og kókið kláraðist, rauði dregillinn og myndatakan var æði... myndir af kvöldinu á leiðinni!
Þökkum liðið.