Nema hvað? Í kvöld!

Í kvöld, 21. janúar, fer fram önnur umferð borgarhluta 1 í spurningakeppninni Nema hvað. Hún fer fram í félagsheimilinu 105, Háteigsskóla og takast á annarsvegar Hlíðaskóli og Tjarnarskóli og hinsvegar Hagaskóli og Háteigsskóli. Keppnistímar eru sem hér segir:
Borgarhluti 1 - miðvikudaginn 21. janúar í félagsmiðstöðinni 105 í Háteigsskóla
Kl. 19.30 Hlíðaskóli og Tjarnarskóli
Kl. 20.15 Hagaskóli og Háteigsskóli
.is mælist til þess að hist verði í félagsmiðstöðvinni ekki síðar en klukkan 19.00, lagt verður af gangandi af stað klukkan 19.10.