Sumarvefur vetrarvefur ÍTR Vefur
 
 

Tilrauna- og vísindavika

Nú er tilrauna- og vísindavikan okkar hálfnuð:) Það er búið að vera mikið fjör og við erum búin að skoða eldfjöll og gera tilraunir með eldgos, gróðursettum karsafræ í glærum ílátum og fylgjumst vel með þeim út vikuna (þau eru strax búin að spíra og byrjuð að grænka). Í gær fórum við í sund og skemmtum okkur konunglega þar sem Bárður og Særós skiptust á að henda börnunum upp í loftið;). síðan héldum við í Tilraunalandið í Norræna húsinu þar sem margt var í gangi og gaman að skoða. Nú er verið að föndra sólkerfi og eftir hádegi taka geimverurnar völdin og við búum til fljúgandi furðuhluti.
Á morgun kíkjum við í Húsdýragarðinn í vísindatjaldið þar og skemmtum okkur síðan frjálst í fjölskyldugarðinum. Við stefnum á að grilla í hádeginu og minnum á að taka með sér pulsu og pylsubrauð.Föstudagurinn er síðan síðasti dagur fyrir sumarlokun. Þá gerum við ýmsar tilraunir og endum á að horfa á Star Wars teiknimyndina.
Við óskum síðan öllum gleðilegs sumars og sjáumst í ágúst:)
Kær kveðja
Starfsfólk Hlíðaskjóls:)

SKEMMTILEGAST Í HLÍÐASKJÓLI