Ævintýravika búin og næst er það Tilrauna og Vísindavika
Í dag var seinasti dagur Ævintýravikunnar hjá okkur í Hlíðaskjóli en Ævintýravikan endaði á óvissudegi með búningaþema. Þessa vikuna fórum við meðal annars í álfaleit í Hellisgerði í Hafnafirði, Dvergaleikana á Klambratúni og í Laugardalslaugina. Á miðvikudaginn fórum við á Dvergaleika Kamps á Klambratúni þar sem við kepptum í ýmsum skemmtilegum og öðruvísi íþróttum með krökkunum í Draumalandi og Frístund. Í gær, fimmtudag fórum við svo í sund í Laugardalslauginni. Veðurguðirnir höfðu greinilega ekki alveg ákveðið sig þann daginn og fengum við því allt frá rigningu og roki til glampandi sólar við mismikla gleði barnanna. Í dag var svokallaður óvissudagur en þá mættu börnin í ævintýrabúningum og þeir sem höfðu áhuga kynntu sér álfa frá hinum ýmsu löndum og aðrir léku sér úti í góða veðrinu. Einnig höfum við verið að lesa Drekabókina og Álfabókina fyrir þá sem vildu hlusta.
Fyrir áhugasama má finna myndir frá vikunni í flipanum hérna vinstra megin undir Myndir: Sumarið 2010
Næsta vika er svo Tilrauna og Vísindavikan en þá munum við takast á við hin ýmsu skemmtilegu vandamál vísindaheimsins og leysa þau í samvinnu við börnin. Næsta vika er jafnframt seinasta vikan í Hlíðaskjóli fyrir sumarfrí en við mætum svo galvösk aftur eftir verslunarmannahelgi, 3. ágúst.
Kveðja
Starfsfólk Hlíðaskjóls