Menningarvika að lokum komin
Menningarvika í Hlíðaskjóli var viðburðarík og skemmtileg vika. Við fórum í Viðey,

Hallgrímskirkjuturn, garðinn hjá listasafni Einars Jónssonar, sund í Breiðholstlaug, föndruðum indíánaföndur og fórum í ratleik. Það eru því allir sælir og glaðir eftir fjöruga og skemmtilega viku hér í Hlíðaskjóli sem veðurguðirnir voru svo góðir að enda fyrir með okkur sólskini og góðu veðri.
Í dag fórum við í skemmtilegan ratleik um skólalóðina þar sem börnin þurftu meðal annars að leysa þrautir á borð við að rétta vog með vatni, giska á fánana, syngja öxar við ána og fara í boðhlaup. Við skemmtum okkur öll konunglega vel en komumst þó að því að enginn í Hlíðaskjóli vissi hvernig fáni Litháen væri. Eftir ævintýri dagsins ættu hins vegar flestir að vita það.
Eftir hádegi héldum við danspartý og lékum okkur úti í sólinni. Það er því okkar von að í dag fari heim hópur af alsælum börnum með góðar minningar frá vikunni.
kveðja
Starfsfólk Hlíðaskjóls