Fjör í Viðey
Í gær fórum við í ævintýraferð í Viðey með Frístund í Háteigsskóla og Draumalandi í

Austurbæjarskóla. Við lögðum af stað strax um morgunin og vorumkomin fyrst allra gesta út í eyjuna kl 11. Þar fengu börnin útrás fyrir ævintýramennskunni en þau hlupu eyjuna nánast endana á milli og skemmtu sér konunglega í ótrúlegustu leikjum. Eftir hádegismat fórum við svo flest öll að Friðarsúlunni margfrægu og fengu nokkur börnin að heyra söguna af Yoko Ono og þeirri fallegu hugsun sem fylgir listaverkinu. Það sem heillað börnin mest var þó fjaran sem liggur fyrir neðan Friðarsúluna. Þar var stór hluti barnanna alveg fram á síðustu stundu og veiddu rækjur, krabba og fleiri smádýr úr fjörunni. Ferðin var löng og ströng og því flestir orðnir vel þreyttir þegar heim var komið en góður dagur að baki.
Adam var með myndavélina á lofti og má sjá afraksturinn
hér:
Ég hvet ykkur til þess að skoða þær en það eru nokkrar mjög fallegar myndir þarna að finna.
Það sem eftir er vikunnar munum við eyða í rólegheitum hérna í Hlíðaskjóli. Í dag ætlum við að föndra meira Indíánaföndur og horfa á Pocahontas. Á morgun ætlum við að fara í ratleik og fleira skemmtilegt.
Kveðja
Starfsfólk Hlíðaskjóls