Perlan, Hallgrímskirkja og Viðey
Þessa vikuna munum við staldra við á ótrúlegustu stöðum með börnunum í Hlíðaskjóli. Í dag var heimadagur þar sem við föndruðum Indjánatjöld, lékum okkur úti í sólinni, dönsuðum smá Michael Jackson og þeir sem vildu kíktu svo í stutta heimsókn í Perluna.
Fjörið heldur svo áfram á morgun þegar við förum í Hallgrímskirkjuturn, kíkjum á garðinn við Listasafn Einars Jónssonar og endum svo daginn á sundferð í Breiðholtslaug. Á miðvikudaginn förum við svo í ævintýraferð í Viðey með Frístund í Háteigsskóla og Draumalandi í Austurbæjarskóla.
Fyrir forvitna foreldra þá höfum við sett inn nokkrar myndir frá deginum í dag og fjöldan allan af myndum frá seinustu viku sem má sjá hérna vinstra megin undir Myndir sumarið 2010.
Kveðja
Starfsfólk Hlíðaskjóls