1.7.2010
Föndur og ratleikur

Í dag föndruðum við fyrir hádegi og viðfangsefnið var "svín í borg" því að þemað var "sveit í borg" :P
Síðan var farið í ratleik eftir hádegi, þar sem við komum við í Hallgrímskirkju, Sundhöllinni, í garðinum við Listasafn Einars Jónssonar, Drekanum og í Krambúðinni.
Allir voru sigurvegarar í dag og við fengum Latabæjarskyrís og horfðum á Monsters vs. Aliens í verðlaun.
30.6.2010
Viðeyjarferð
Í dag fórum við til Viðeyjar og hittum þar Frístund og Hlíðaskjól. Við tókum strætó með Hlíðaskjóli en það var bara kósí og þröngt mega sáttir sitja. Í Viðey lékum við okkur svolítið á leiksvæðinu við Viðeyjarstofu og borðuðum hádegsnesti þar. Síðan lá leiðin að Friðarsúlu Yoko Ono og þaðan niður í fjöru þar sem mörg gersemin fannst. Ferjan fór eina ferð með hvert frístundaheimili og svo tróðum við okkur aftur í strætó með Hlíðaskjóli. Við vorum svo heppin að það fór ekki að rigna fyrr en við vorum lögð af stað í strætó. Við komum heim rúmlega þrjú, þreytt og sátt með daginn.
22.6.2010
Siglingafjör og sund :)
Í gær gerðum við trölladeig og bjuggum til ekta víkinga-rúna-hálsmen sem við ætlum að mála á morgun og þau ættu að verða tilbúin á fimmtudaginn og þá geta börnin tekið þau með sér heim :)
Í dag fórum í Nauthólsvíkina og borðuðum morgunnestið okkar þar áður en öllum var skellt í björgunarvesti og svo á bátin okkar "Jónas Feita" þar sigldum við um alla Nauthólsvíkina með stoppi hjá krabbagildru sem var dreginn upp úr sjónum fyrir okkur til að líta á krabba :)
Eftir bátsferðina röltum við yfir í Nauthólsvíkina og skelltum okkur í sundföt og frískuðum upp á okkur í heita pottinum þar og var mjög vinsælt að hlaupa á milli pottsins og út í sjó og aftur í pottinn til að hlýja sér :)
Þegar við komum heim slökuðum við á yfir myndbandi og sófakúri eftir viðburðaríkan dag og krakkarnir fengu poppkorn því þau voru búin að vera svo rosalega dugleg yfir daginn.
Æðislegur dagur og takk fyrir okkur :)
Það eru komnar inn myndir frá deginum merktar" VÍKINGAVIKAN" -kíkið á þær :)
11.6.2010
Fjöruferð og Flöskuskeyti í viku hafsins
Í gær gerðum við flöskuskeyti til að setja í sjóinn og allir gátu sett smá skilaboð frá sjálfum sér með í flöskuna. Það má sjá sum skilaboðin á myndum hjá okkur merkt; Myndir-sumar-vika hafsins hér til hliðar á síðunni ( mörg mjög fyndin)
Í dag fórum við síðan í fjöruferð á Ægissíðuna og krakkarnir týndu fullt af kröbbum, skeljum og ýmiskonar varning úr fjörunni og við tókum flöskuskeytið sem við gerðum daginn áður og hentum því í sjóinn og vonumst til að fá svar frá einhverjum seinna meir ;)
Eftir fjöruferðina frískuðum við upp á okkur með sundferð í Laugardalslaugina :)
Dagskrárnar fyrir næstu 2 vikur eru komnar og eru hér til hægri á síðunni og þar er hægt að skoða þær ýtarlega.
Annars viljum við bara þakka fyrir okkur og segja góða helgi :)