24.6.2010
Sumardagskrá
Dagskrá sumarsins í félagsmiðstöðinni er stöppuð af sumarlegum og skemmtilegum dagskrárliðum!
Punktur is, 105 og 100og1 sameinuðust í sumar og verða að einni félagsmiðstöð með aðstöðu í Nauthólsvík og Ýmishúsinu.
Á daginn er hægt að kíkja niðrí Nauthólsvík í litla Kotið okkar, við tökum á móti þér í gleðinni og gerum eitthvað af eftirfarandi:
Smíðum fleka og siglum í Kópavog
Horfum á HM (bara ef það er vont veður)
Sápukúlubandi eða búum til risa vatnsrennibraut
Bökum rice crispies kökur
Veiðum
Förum í pikk nikk eða á kaffihús
Skellum okkur í strandblak eða strandfótbolta
Förum í vatnsstríð
Eða gerum það sem öllum finnst lang lang skemmtilegast og það er að skella sér á sjóinn!!
(s.s. fáum lánaða kajaka, kanó eða árabáta hjá Siglunesi og reynum að bleyta okkur sem minnst/mest)
[ MEIRA ]