Myndir
Um okkur
Fréttir
Starfsfólk
Fréttir úr barnastarfi
Reglur um útivistatíma unglinga
101
105
Punktur IS
Frístundir 5. - 6. bekkingar
7. bekkjar frístundaklúbbur
VALUR
Í dag, milli kl. 14:45 og 15:15, verður opnuð sýning í anddyri Þjónustumiðstöðvar miðborgar og Hlíða með verkum barna úr Hlíðaskjóli. Verkin voru flest unnin í fyrra í tengslum við vinnu með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Á sýningunni má sjá fallega réttindateppið okkar, fjölskyldumyndir og nafnspjöld sem krakkarnir gerðu, hrósfestar og dagbók frá þeim tíma sem unnið var með sáttmálann. Síðast en ekki síst er þar að finna nokkur af þeim réttindaspjöldum sem krakkarnir gengu með í réttindagöngu barna á sumardaginn fyrsta í fyrra. Vonandi sjá sem flestir sér fært að koma og líta á þessi frábæru verk.